Freysier |
|
Krein fjölskyldan
Kíkja í gestabókina ![]() Tenglar Brim doodie.com Góð gítarsíða How to learn Swedish in 1000 difficult lessons Kover-lög Músik.is Naked Space Tungumálstrax Bloggarar Andrea Mekkín Auður í krafti kvenna Bjarni Sig Daníel Ómar Batistuta Einar Þorgeirs Elísabet og Nonni Elísabet Leifs Elísabeth Ann Gunni Annels Harpa Flóvents Heba Maren Hjördís Birna Hjörleifur og Bebba Hlynur Íris Thord Jóhann Linda Maggi Marvin Palla frænk Rósa Ragnars Steranovitz Sweif swester Tommi Unnur munnur Örvar Gamlar færslur Tónlist Fréttir og umfjöllun Junkmedia NME No Ripcord Pitchforkmedia Spin Mp3 Björgvin Gíslason Hudson Wayne Jón.is Rokk.is Sumar á Írlandi Tónlist dr. Gunna Síður með gítargripum AZtabs Bríkin Dvergatuddinn Gitar.is Gítarbók Djúpakletts Music.nord.is Mussoft Shaker Skátasöngbókin 1999 Söngtextasafn Jómma Annað Acclaimed Music Alaska Jim Allmusic.com Everyhit.com Hljómsveitin Rými Músik.is Rocklist.net Tónlist á Huga.is Hljöðfæraverslanir Gítarinn Rín Tónabúðin ![]() |
14.2.06
Ég var klukkaður af Magga og hef í kjölfarið verið að velta því fyrir mér hvort þeir sem finna upp á þessum klukkleikjum segi (eða skrifi): „Ok, ég skal byrja“, en tengi það að vísu á engan hátt við áðurnefndan Magga 4 störf sem ég hef unnið við yfir ævina: Malbik: Frábært sumar en kannski dálítið furðulegur vinnustaður. Viðurnefni fastra starfsmanna voru, minnir mig, flest af svipuðum toga: kúkur, skítur og ræpuheili. Ég er ekki frá því að viðurnefnin hafi öll verið runnin undan rifjum mjúkmáls yfirmanns míns en við höfum sennilega átt það sameiginlegt að brúnn var í miklu uppáhaldi hjá okkur. Kjötvinnsla: Jóhann Már hafði áður unnið þarna og hafði ansi skemmtilega sögu frá að segja (í ÍSL 103) sem var jafnframt frekar ógnvekjandi. Einnig höfðu Maggi og Biggi unnið þarna saman og vöruðu mig harðlega við því að fara að vinna í kjötvinnslu þessari. Ég lét mér ekki segjast og sá eftir því sífellt meira eftir því sem leið á sumarið. Þetta er þó mjög eftirminnilegur vinnustaður - t.d. var einn kallaður Keisarinn, og líkaði mér ávallt ákaflega vel við þann mann, og annar Sýslumaðurinn en sá var aðkomumaður og gat ekki svarað því í hvaða sýslu Keflavík væri. Sá sem spurði hafði unun af því að spyrja ólíklegustu spurninga en aðeins ef svör samstarfsmanna hans voru röng. Í fyrstu vikunni minni spurði hann mig t.d. hvaða ár Háskóli Íslands hefði verið stofnaður og hverjir hefðu ráðist á Pearl Harbour. Þegar í ljós kom að ég gat svarað flestum spurninganna urðu þær ekki mikið fleiri. Vinna með fötluðum í Þroskahjálp: Skemmtilegasta starf sem ég hef unnið við. Vinna með sjúkum setningum: Nokkrar þeirra voru m.a.s. frægar, t.d. Mér langar í ís, en aðrar voru minna þekktar, á borð við Þetta er sumarbústaðurinn Jóns. 4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur: Ég get því miður ekki horft á bíómyndir aftur og aftur og horfi sjaldnast á nokkra mynd aftur. Ég gæti kannski einna helst nefnt Almost Famous en ég held samt að ég sé orðinn pínu leiður á henni. Sú mynd sem ég hef hins vegar sennilega horft oftast á er Ace Ventura: Pet Detective. Það er ekki á dagskránni að horfa á hana á næstunni. 4 staðir sem ég hef búið á: Heiðarbraut (Kef.), Baugholt (Kef.), Eggertsgata (Rvk.), Suðurgata (Rvk.). 4 sjónvarpsþættir sem eru í uppáhaldi: Office, Extras, Simpsons og Lost. 4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum: Kempervennen (Hollandi), Mallorca, Krít og Hróarskelda. Ég vil einnig minnast á Hellu um verslunarmannahelgina 2004 en þar var því miður enginn sem við gátum sótt heim. 4 heimasíður sem ég skoða daglega: bebbaoghjolli.blogspot.com, webmail.hi.is, tommiyoung.blogspot.com, grolsch.blogspot.com. 4 máltíðir sem ég held upp á: Hvurslags leiðindaspurningar eru þetta? er barasta ágætis svar. 4 bækur sem ég les oft: Ég les enga bók oft. Kannski finnst mér ég vera að sóa tímanum með því að byrja aftur á bók sem ég hef þegar lesið í stað þess að lesa einhverja aðra bók og enda þannig með því að lesa ekki neitt. 4 staðir sem ég myndi vilja vera á núna: Hvurslags leiðindaspurningar eru þetta? 4 manneskjur sem ég ætla að klukka: Andrea, Gannels, Gylfi Már og Tommi (þ.e.a.s. allt krúið hans). 1.2.06
Styrktartónleikar Sjáumst á tónleikunum á Ránni á morgun kl. 20 til styrktar Bryndísi Evu Hjörleifsdóttur. Sjá nánar hér. |