Freysier |
|
Krein fjölskyldan
Kíkja í gestabókina ![]() Tenglar Brim doodie.com Góð gítarsíða How to learn Swedish in 1000 difficult lessons Kover-lög Músik.is Naked Space Tungumálstrax Bloggarar Andrea Mekkín Auður í krafti kvenna Bjarni Sig Daníel Ómar Batistuta Einar Þorgeirs Elísabet og Nonni Elísabet Leifs Elísabeth Ann Gunni Annels Harpa Flóvents Heba Maren Hjördís Birna Hjörleifur og Bebba Hlynur Íris Thord Jóhann Linda Maggi Marvin Palla frænk Rósa Ragnars Steranovitz Sweif swester Tommi Unnur munnur Örvar Gamlar færslur Tónlist Fréttir og umfjöllun Junkmedia NME No Ripcord Pitchforkmedia Spin Mp3 Björgvin Gíslason Hudson Wayne Jón.is Rokk.is Sumar á Írlandi Tónlist dr. Gunna Síður með gítargripum AZtabs Bríkin Dvergatuddinn Gitar.is Gítarbók Djúpakletts Music.nord.is Mussoft Shaker Skátasöngbókin 1999 Söngtextasafn Jómma Annað Acclaimed Music Alaska Jim Allmusic.com Everyhit.com Hljómsveitin Rými Músik.is Rocklist.net Tónlist á Huga.is Hljöðfæraverslanir Gítarinn Rín Tónabúðin ![]() |
11.5.06
Léleg tónlist Mig hefur í nokkurn tíma langað til að taka saman lista yfir uppáhalds lélegu lögin „mín“. Það ætla ég þó ekki að gera í þetta skipti. Fólk tekur gjarnan saman lista yfir uppáhalds lögin sín, þ.e. góðu lögin sem eru í uppáhaldi, og stundum er yfirskriftin m.a.s. Lögin sem breyttu lífi mínu. Á slíkum listum eru auðvitað oft lög sem ekki eru mjög þekkt, þ.e. ef ég ætti að velja uppáhalds Bítlalagið mitt kæmi Yesterday alveg örugglega ekki til greina vegna þess að ALLIR hafa heyrt það og ÖLLUM finnst það gott. Það er svipað með þennan kannski tilvonandi lélega lista minn; ég myndi aldrei velja Boom, Boom, Boom, Boom með Vengaboys vegna þess að mjög margir ættu að hafa heyrt það og flestum ætti að finnast lagið alveg hræðilegt en samt eitthvað svo skemmtilegt. Lélegu uppáhalds lögin hafa a.m.k. eitt fram yfir þau góðu. Sama hversu vænt manni þykir um lagið ætti maður ekki að geta misnotað það með of mikilli hlustun vegna þess hve lélegt það er. Þannig heyrir maður alltaf hvað manni þykir lagið lélegt en um leið af hverju það er manni svo kært. Hins vegar er fílingurinn gagnvart mörgum af þeim (góðu) lögum, sem einu sinni voru í svo miklu uppáhaldi, eiginlega horfinn vegna allt of mikillar hlustunar. Annars held ég að ég hafi alltaf haft gaman af lögum sem eru léleg (við skulum bara sætta okkur við að sum lög eru léleg). Þess vegna held ég að ég hafi svona gaman af Eurovision. Lögin eru sum svo ofboðslega léleg að ég eiginlega elska að hata þau. Önnur þoli ég hreinlega ekki á meðan keppni stendur en svo að nokkrum mánuðum eða árum liðnum er mér farið að líka bara býsna vel við þau og jafnvel þykja vænt um þau. Hvernig er t.d. annað hægt en þykja vænt um eistneska sigurlagið frá 2001 í dag en jafnframt hafa tryllst af reiði þegar það vann? En fyrst ég er kominn út í Eurovisionsálma verð ég að minnast á keppnina sem fer fram síðar í mánuðinum. Pirrar stolni Bon Jovi-, nei, meina Alice Cooper-parturinn í finnska laginu engan nema mig? Jæja, kannski tek ég þessa keppni of alvarlega. Mér finnst þessir Eurovisonþættir sem sýndir eru á laugardagskvöldum nokkuð skemmtilegir og mér finnst Eiríkur Hauksson helvíti góður (best er auðvitað þegar hann ber fram ensk orð með skandinavískum hreim). Ef ég tæki saman áðurnefndan lista ætti Eiríkur, í broddi fylkingar Endurvinnslunnar, alveg örugglega séns á því að lenda ofarlega, t.d. með Dollí dí eða Bæ bæ bílaplan af plötunni Búnir að 'eika'ða (nöfnin segja eiginlega meira en... jamm). Hins vegar ættu önnur lög líklega meiri séns vegna þess að þau hafa — plús það að vera léleg að mínu mati — eitthvert svona „tilfinningalegt gildi“ fyrir mig. Ég á nú ekki mjög marga tónlistardiska (held þeim fari fækkandi því brósi er að reyna að stela þeim) en á þó tvo með Carpenters! Annar er best of og á hann hlustaði ég talsvert á ágætis tímabili. Þess vegna kæmist til dæmis þetta lag alveg örugglega á topp 10 enda breytti það lífi mínu: Lagið gerði mig að því karlmenni sem ég er í dag :) Þetta er það sem ég kalla símnúmera- eða tölustafalag og svoleiðis lög eru nánast án undantekninga léleg en góð afþreying (man einhver eftir vierzweieinsdreinulldreizwei, ruf an?). Þetta lag er kannski undantekning en það er a.m.k. hallærislegt. Í sama flokk falla bókstafalög eins og þetta. 1.5.06
Ég hef „upplifað“ 18 28 daga febrúarmánuði en samt var það ekki fyrr en fyrir stuttu sem ég áttaði mig á því að á óhlaupári ber 1. feb. og 1. mars (o.s.frv.) upp á sama vikudegi. |