Freysier |
|
Krein fjölskyldan
Kíkja í gestabókina ![]() Tenglar Brim doodie.com Góð gítarsíða How to learn Swedish in 1000 difficult lessons Kover-lög Músik.is Naked Space Tungumálstrax Bloggarar Andrea Mekkín Auður í krafti kvenna Bjarni Sig Daníel Ómar Batistuta Einar Þorgeirs Elísabet og Nonni Elísabet Leifs Elísabeth Ann Gunni Annels Harpa Flóvents Heba Maren Hjördís Birna Hjörleifur og Bebba Hlynur Íris Thord Jóhann Linda Maggi Marvin Palla frænk Rósa Ragnars Steranovitz Sweif swester Tommi Unnur munnur Örvar Gamlar færslur Tónlist Fréttir og umfjöllun Junkmedia NME No Ripcord Pitchforkmedia Spin Mp3 Björgvin Gíslason Hudson Wayne Jón.is Rokk.is Sumar á Írlandi Tónlist dr. Gunna Síður með gítargripum AZtabs Bríkin Dvergatuddinn Gitar.is Gítarbók Djúpakletts Music.nord.is Mussoft Shaker Skátasöngbókin 1999 Söngtextasafn Jómma Annað Acclaimed Music Alaska Jim Allmusic.com Everyhit.com Hljómsveitin Rými Músik.is Rocklist.net Tónlist á Huga.is Hljöðfæraverslanir Gítarinn Rín Tónabúðin ![]() |
25.12.06
Ketkrókur Þar sem Gunnar Einar kemst ansi nálægt því að vera jólabarn (fæddur 3. október – 9 mánuðir = 3. janúar) er hér lag sem Brynjar og Sveinn sömdu um hann og spiluðu í 25 ára afmæli hans fyrr á árinu. Lagið um Gannels, gjörið svo vel. Ég vona að ég megi setja þetta á netið. (Að vísu þekki ég mann sem er jólabarn (fæddan 24. september) en mér finnst óþægilegt að vera að blogga of mikið um pabba minn, auk þess sem ég veit ekki til þess að samið hafi verið lag um hann. Afi þrætti ekki einu sinni fyrir þetta þegar þetta barst í tal fyrir nokkrum árum.) Efnisorð: Gannels 22.12.06
Gáttaþefur Hér eru tvö skemmtileg lög sem byggjast á sömu laglínu úr einhverju þjóðlagi, annað er Scarborough Fair með Simon og Garfunkel en hitt Elizabeth My Dear með Stone Roses. Ég hélt alltaf að þeir í Stone Roses væru steluþjófar eða þangað til ég fletti þessu upp á netinu. Gluggagægir Ég hef misjafna reynslu af geisladiskakaupum. Mér finnst alltaf gaman að skoða draslrekkana í plötubúðum með ódýrum diskum því stundum rekst maður á eitthvað sniðugt. Ég var einu sinni í Skífunni og rakst á ódýran disk í einum draslrekkanum, Best of the Animals — The House of the Rising Sun. Þar sem ég þekkti lítið sem ekkert til Animals, að undanskildu titillaginu (þjóðlagi í flutningi sveitarinnar) og 1–2 lögum til viðbótar, keypti ég diskinn. Þegar heim var komið ákvað ég að hlusta á diskinn. Eitthvað fannst mér House of the Rising Sun hljóma skringilega en hvað um það, ég lét það ekki á mig fá. Þegar kom að næsta lagi, Don’t Let Me Be Misunderstood sem er eitt af þeirra frægustu, fóru hins vegar að renna á mig tvær grímur. Ég hafði sem sagt keypt disk með hljómsveit sem koveraði Animals og það kom hvergi fram á hulstrinu (það kemur bókstaflega hvergi fram). En útgáfan á Don’t Let Me Be Misunderstood er ein sú versta... Æ, það má hlusta á hana hér og bera saman við útgáfu Animals hér. Og þetta er ekki í eina skiptið sem þetta hefur hent mig. Einu sinni keypti ég diskinn Burt Bacharach — A Man and his Music. Þar kemur heldur hvergi fram að öll lögin séu í einhverjum leiðindaútgáfum þar sem er eiginlega ekkert sungið. Gylfi bróðir lenti samt örugglega verr í þessu en ég. Hann gaf einu sinni pabba Best of Mamas and the Papas í jólagjöf sem já, uppgötvaðist á aðfangadagskvöld að... En diskurinn átti nú bara að fylgja með þannig að það var ekkert stórmál. En ég veit eiginlega alveg jafnlítið um Animals og ég vissi fyrir nokkrum árum þegar ég keypti diskinn. 21.12.06
Bjúgnakrækir Meira af því sama, hér er eldri útgáfa No Surprises með Radiohead. Mér finnst þetta æðisleg útgáfa. Efnisorð: Radiohead 20.12.06
Skyrgámur Það styttist í jólin... Hér er jólalagasyrpa með Dengsa og einhverjum börnum. Hlustið á hana næsta korterið! Hún er 14 mínútur að lengd. 19.12.06
Hurðaskellir Lagið í dag er All That She Wants með Ace of Base en ástæðan er ekki bara sú hvað lagið er gott heldur líka að ég misskildi textann pínulítið þegar ég var yngri. Ég söng alltaf „Oh, Muggsy Bogues“ í staðinn fyrir „All that she wants“. Eða, ég misskildi hann ekki beint, ég vissi alveg að lagið væri ekki um Muggsy en ég heyrði samt ekkert annað. Þess má geta að þegar lagið kom út 1993 lék Muggsy Bogues körfubolta í NBA með Charlotte Hornets en hann er örugglega frægastur fyrir það hvað hann var og er lágvaxinn, gott ef hann er ekki bara sá lágvaxnasti í NBA frá upphafi? --- Í gær var ég sakaður um að vera annaðhvort siðblindur eða þá hættur að horfa á Beverly Hills! Ég er ekki siðblindur (stundum er nú samt fínt að lygna aftur augunum) og er að sjálfsögðu ekki heldur hættur að horfa á 90210 en ég hef því miður misst af nokkrum þáttum í röð (ég sofnaði yfir þættinum í gær). Til þess að láta í ljós ást mína á BH læt ég upphafslag þáttanna fylgja með Muggsy. Hugmynd að eftirminnilegri (á)hlustun: Setjið fyrst All That She Wants á fóninn og svo 90210-lagið en nú skuluð þið stilla á repeat :) 18.12.06
Askasleikir Auðvitað svaraði Andrea „gátu“ Pottaskefils rétt. Í Týndu kynslóðinni og Sókrates er minnst á Jón og Pál sem sömdu Flying ásamt Georg og Ríkharði: Bjartmar: „Manstu eftir Jan og Kjell, segir hann eftir gítarsólóið. Manstu eftir John, manstu eftir Paul? Réttu mér albúmið.“ Sverrir: „Ég syng um Kólumbus og Sólon Íslandus og Mendelsohn og Paul og John og John Paul Sigmarsson.“ --- En jæja, ég opnaði Windows Media Player, valdi Library, valdi svo Shuffle, þ.e. lög af handahófi, og lét WMP velja 10 lög: 1. Huey Lewis and the News – The Heart of Rock & Roll 2. Coldplay – Low 3. Sinead O’Connor – Paddys Lament 4. Elvis Presley – Surrender 5. Modest Mouse – A Different City 6. White Stripes – Take, Take, Take 7. Bloc Party – Blue Light 8. Leonard Cohen – Lady Midnight 9. Ennio Morricone – El Mercenario 10. Deus – Disappointed in the Sun Ég var búinn að ákveða að setja tengil á tvö álitlegustu/áheyrilegustu/skástu lögin að mínu mati en ég ætla að sleppa því. (Ég hefði líklega valið lög nr. 9 og 10.) Ég hafði ekki heyrt eiginlega neitt af þessum lögum en það er nú það skemmtilega við „bókasafnið“, maður heyrir eitthvað nýtt. Því miður var fátt spennandi að finna í safninu núna. Í leiðinni (= b.t.w.): Hvernig hljóða (nákvæmar) reglur um það hvar skuli rita stóran staf í heiti bóka, laga, platna o.s.frv. á ensku? 17.12.06
Pottaskefill Lagið Flying af Magical Mystery Tour er sennilega óbítlalegasta lag Bítlanna sem ég man eftir. Það væri nú líklega eins og að gefa kartöflu í skóinn að hafa þetta eina lag dagsins. Því læt ég tvö lög fylgja með, Týndu kynslóðina eftir Bjartmar Guðlaugsson og Sókrates eftir Sverri Stormsker, en í fljótu bragði virðast þau kannski ekki eiga svo mikið sameiginlegt með Flying en það er samt eitt (sem ég hef í huga) sem sameinar lögin þrjú að einhverju leyti. Hvað er það? Fundarlaunum heitið. 16.12.06
Þvörusleikir Árið 2000 kom Radiohead-platan Kid A út eftir langa bið... Eftir að hafa heyrt Motion Picture Soundtrack í akústík-útgáfu áður en það var hljóðritað fyrir KiddA olli það manni svolitlum (soltlum?) vonbrigðum hvað þeir hausar gerðu við lagið í hljóðveri, mig minnir að þeir hafi m.a.s. fellt út erindi úr textanum og ég veit ekki hvað og hvað (heyra lagið í endanlegri gerð hér). Ég tek það fram að ég veit ekki alveg hvaða skoðun ég hef á þessu nú. Stutt saga af Birni: Hann var mjög mikill aðdáandi Radiohead (og er enn) og ekki svo löngu eftir að Ok Computer kom út vorum við Björn og Sveinn heima hjá Davíð eitthvað að tala um tónlist. Björn sagði þá hvað það væri frábært að sofna við Radiohead á hverju einasta kvöldi. Þegar kom í ljós að Davíð og Sveinn hlustuðu alveg stundum á eitthvað annað en Rhead fyrir svefninn varð hann frekar móðgaður, svona eins og þeir hefðu haldið fram hjá Rh :) Björn leiðréttir mig bara ef þetta er ekki rétt sagt frá. Efnisorð: Radiohead 15.12.06
Stúfur Sveinn minn jóla er eitthvað seint á ferð þessi jólin... En hvað um það, allir út á gólf því hvað er betra en að dansa?!? Þetta lag með Hemma Gunn byrjar reyndar rosalega illa en það verður alltaf betra og betra þegar líður á lagið. 13.12.06
Giljagaur 12.12.06
Stekkjarstaur Í fyrra gáfu allir jólasveinarnir jólalag í skóinn en ekki í ár, nú eru það „venjuleg“ lög. Ég var um daginn að gramsa í gömlum diskum og fann þá upptöku af tónleikum með Radiohead sem ég veit ekki hvenær fóru fram en það var a.m.k. áður en Ok Computer kom út árið 1997. Ég náði í þessa tónleika fyrir nokkrum árum — það hefur verið einhvern tímann í lok síðustu aldar — en ég held ég hafi verið ástfanginn af Radiohead á þeim tíma... en nú erum við sennilega bara mjög góðir vinir. Þá leitaði maður að lögum með Radiohead út um allt netið og þá var maður auðvitað bara með „gamaldags“ innhringitengingu sem var mjög léleg þannig að það gat tekið nokkur kvöld að ná í heila tónleika. Lög Stekkjarstaurs eru bæði frá fyrrnefndum tónleikum. Hið fyrra er eldri útgáfa af Paranoid Android sem er talsvert frábrugðin endanlegri gerð lagsins. Hið síðara er eldri útgáfa af Karma Police en þar segir t.d.: „Arrest this girl, she stares at me as if she owns the world“, í stað: „Arrest this girl, her Hitler hairdo is making me feel ill“. (Til samanburðar má hlusta á þessi lög eins og þau hljóma á Ok Computer hér og hér.) Það væri óskandi að fleiri jólasveinar sýndu Radiohead áhuga :) Efnisorð: Radiohead, Stekkjarstaur 1.12.06
The Office - David Brent Dance Í dag er dagur rauða nefsins og framlag mitt er dans sem hinn 39 ára gamli David Brent steig einmitt á degi rauða nefsins í The Office og allt var þetta „for charity“. Það er hægt að horfa á þáttinn í tveimur hlutum á netinu hér (http://www.dailymotion.com/video/xo0t9_the-office-uk-s02e05-part-1) og hér (http://www.dailymotion.com/video/xo1bv_the-office-uk-s02e05-part-2) en hann gerist allur á degi rauða nefsins. |